HVAÐ ERUM VIÐ
Reykjavík Arkitektar (RVK ARK) er arkitektastofa í Reykjavík.
Einkenni stofunnar er sterk hönnunarsýn og fagleg vinnubrögð. Alþjóðleg reynsla stofunnar og ýtarlegt verkferli gera okkur kleift að útfæra sérhannaðar lausnir sem passa við sérstöðu hvers verkefnis sem við tökum að okkur.
Markmið okkar er að móta skýra hönnunarsýn sem byggist á aðstæðum, forsendum og metnaði hvers verkefnis. Hugmyndafræði stofunnar er ígrunduð og metnaðarfull á sama tíma, knúin áfram af brennandi áhuga á möguleikum hins byggða umhverfis.
Verkferli okkar byggir á RIBA-hönnunarfösum (greining, tillögur, hönnun, sérteikningar og framkvæmdir) og gæðakerfi sem tryggir að ákvarðanir, tímalína og kostnaður séu í samræmi við markmið verkefnisins. Sterk hönnunarstjórnun er kjarninn í því að hönnunarsýn verkefnis skili sér í endanlegri mynd á framkvæmdarstað.
Við höfum lært mikið af fjölbreyttum íslenskum og erlendum verkefnum — litlum og stórum — og viljum miðla þeirri reynslu út á við. Við einbeitum okkur að þróunarverkefnum, íbúðarhúsnæði og ferðaþjónustu. Við viljum samstarf og samræður við þá sem hafa svipaða sýn á heiminn; þá sem vilja meira en hið hefðbundna og vilja gera betur en síðast.
HAFA SAMBAND
Sími: +354 419 6300
rvkark@rvkark.is
HVAR ERU VIÐ
Reykjavík Arkitektar
Eyjarslóð 9. 2h
101 Reykjavík, Iceland

HVAÐ GERUM VIÐ
Hlustum og spyrjum spurninga; höfum hlutina einfalda og skýra; skiljum hismið frá kjarnanum; elskum góð vandamál til að leysa; byggjum, afbyggjum, endurbyggðum; rannsökum, lærum og leikum; erum klár, kjánalega og forvitinn á sama tíma; meðtökum breytingar sem eðlilegur hluti af ferli; sættum okkur við takmörkin – en jafnframt ýtum á þau; erum hrifin en ekki ástfangin; samþykkjum að ekkert sé nýtt undir sólinni; horfum til himins með fætur fasta á jörðinni; erum hugulsöm og gagnrýnin á sama tíma; þefum af hráum byggingarefnum óhóflega mikið; nærum skapandi vinnuumhverfi.
ARNALDUR G. SCHRAM
Arnaldur Schram, stofnandi Reykjavík Arkitekta, hefur yfir tvo áratugi alþjóðlegrar reynslu í arkitektúr, hefur starfað í New York, Los Angeles og á Íslandi. Hann hefur starfað sem verkefnisstjóri, yfirhönnuður og arkitekt hjá virtum stofum í Bandaríkjunum og á Íslandi, auk þess að sinna eigin verkefnum.
Arnaldur er með B.Arch gráðu frá SCI-Arc í Los Angeles og M.AAD frá Columbia University í New York. Hann hefur verið skráður mannvirkjahönnuður á Íslandi frá 2015 og er meðlimur í American Institute of Architects (AIA).
Verk Arnaldar hafa verið sýnd á sýningum í borgum á borð við New York, Los Angeles, Rio de Janeiro, Tókýó og Reykjavík, og hafa birst í alþjóðlegum tímaritum. Hann hefur jafnframt kennt og verið gestagagnrýnandi við háskóla í Bandaríkjunum og á Íslandi.
Arnaldur sneri aftur til Íslands árið 2020 með alþjóðlega sýn og metnað til að skapa nýstárlegan og vandaðan arkitektúr.